Suðureyri

Heimasíða Veðurstofu Íslands
Heim > Snjóflóð > Hættumat > Suðureyri

Staða:  Staðfest af umhverfisráðherra

Tillögur að hættumati vegna ofanflóða á Suðureyri voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ísafjarðarbæjar. Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, vann að þeim hluta verkefnisins sem varðar hættumat vegna skriðufalla. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.

Vinna við hættumat fyrir Suðureyri hófst árið 2003. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 9. mars 2005 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust. Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 30. ágúst 2005.

Matsvinna

Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar

Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:  getacro.gif (1692 bytes)

Skýrslur og kort

Hættumatskort (VÍ 2005)  
Mat á hættu vegna ofanflóða á Suðureyri (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2005)
Mat á hættu vegna ofanflóða á Suðureyri við Súgandafjörð. Greinargerð með hættumatskorti (hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2005) 

Hættumat fyrir Suðureyri í Súgandafirði (VÍ greinargerð 04023, 2004)

 

Hættumat vegna skriðufalla á Suðureyri (NÍ skýrsla 04002, 2004) 


Uppfært: 04.11.2005     Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is