Neskaupstaður |
![]() |
Heim > Snjóflóð > Hættumat > Neskaupstaður |
Staða: Staðfest af umhverfisráðherra
Hættumat vegna ofanflóða í Neskaupstað var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Fjarðabyggðar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í ágúst 2000 í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Neskaupstað hófst 1998 og vettvangskönnun fór fram þá um sumarið. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 8. maí 2001 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust. Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 11. janúar 2002.
Matsvinna
Hættumatsnefnd Fjarðabyggðar
Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að
skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:
Skýrslur og kort
Uppfært: 24.02.2007 Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is