Eskifjörður |
![]() |
Heim > Snjóflóð > Hættumat > Eskifjörður |
Staða: Staðfest af umhverfisráðherra
Hættumat vegna ofanflóða á Eskifirði var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Fjarðabyggðar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Eskifjörð hófst árið 2000 og vettvangskönnun fór fram
þá um sumarið. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 29.
apríl 2002 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Ein athugasemd er
varðaði mörk hættusvæðis C við Bogahlíð barst á kynningartímanum. Fjallað var
um athugasemdina í hættumatsnefnd og leitað skýringa Veðurstofu Íslands, en ekki
þótti tilefni til að breyta mörkum hættusvæða vegna hennar. Hættumatið var
staðfest af umhverfisráðherra 12. ágúst 2002.
Matsvinna
Hættumatsnefnd Fjarðabyggðar
Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að
skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:
Skýrslur og kort
Uppfært: 01.06.2005 Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is