Bolungarvík

Heimasíða Veðurstofu Íslands
Heim > Snjóflóð > Hættumat > Bolungarvík

Staða:  Staðfest af umhverfisráðherra

Tillögur að hættumati vegna ofanflóða í Bolungarvík voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Bolungarvíkur. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.

Vinna við hættumat fyrir Bolungarvík hófst árið 1994 samkvæmt reglugerð sem þá var í gildi. Verkinu var síðan frestað 1995 vegna snjóflóðaslysa í Súðavík og á Flateyri. Vinna við núverandi hættumat hófs árið 2000. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 10. desember 2002 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Ein athugasemd barst. Megininntak hennar var að snjómagn á upptakasvæðum væri ofmetið. Því sýndu tvívíðir líkanreikningar of mikla úthlaupslengd. Fjallað var um athugasemdina í hættumatsnefnd og í svari hennar kom m.a. fram að tvívíða líkanið er aðeins leiðbeinandi en ekki ákvarðandi fyrir hættumatið. Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 23. september 2003.

Matsvinna

Hættumatsnefnd Bolungarvíkur

Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:  getacro.gif (1692 bytes)

Skýrslur og kort

Hættumatskort (VÍ 2003)  
Hættumatskort, Bolungarvík (tillaga eftir byggingu varnarvirkja)  
Mat á hættu vegna ofanflóða í Bolungarvík (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Bolungarvíkur, 2002)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Bolungarvík. Greinargerð með hættumatskorti (hættumatsnefnd Bolungarvíkur, 2003) 

Hazard zoning for Bolungarvík - Technical report (VÍ greinargerð 02031, 2002)

 

Results of the 2D avalanche model SAMOS for Bolungarvík and Neskaupstaður, 2001 (VÍ greinargerð 01011)

SAMOS powerpoint files

Ofanflóð í Bolungarvík (VÍ greinargerð 02037, 2002)

 

Veður í aðdraganda snjóflóðahrina á norðanverðum Vestfjörðum (VÍ greinargerð 02019, 2002)

 


Uppfært: 24.02.2007     Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is