Um tegundir veðurstöðva
Mannaðar skeytastöðvar
Á skeytastöðvum er veðrið athugað kl. 3, 6, 9, 12, 15, 18, 21 og 24.
Flestar stöðvarnar athuga einungis á fjórum til fimm athugunartímum
yfir daginn, en á fimm stöðvum eru athuganir allan sólarhringinn (2019).
Allar stöðvarnar hafa úrkomumæli og hitamælaskýli fyrir hitamæla.
Þá hafa margar þeirra loftvog og vindmæli. Á stöðinni eru mæld og
metin: Lofthiti, daggarmark, lágmarkshiti, hámarkshiti, úrkomumagn,
úrkomutegund, loftþrýstingur, loftþrýstingsbreyting, einkenni
loftþrýstingsbreytinga, skýjahula, hæð lægstu skýja, skýjahula lágskýja,
tegund lágskýja, tegund miðskýja, tegund háskýja, skyggni, veðurlýsing,
jarðlag, snjólag, snjódýpt, snjóhula í fjöllum, sjólag, vindhraði og
vindátt. Nokkrar stöðvar mæla lágmarkshita næturinnar við jörð eða
sjávarhita. Nokkrar stöðvar meta sjónflugsskilyrði yfir nálægar heiðar.
Athuganir eru sendar á hverjum athugunartíma um tölvu til Veðurstofunnar
og að auki er send mánaðarskýrsla í pósti.
Mannaðar veðurfarsstöðvar
Búið er að breyta öllum veðurfarsstöðvum í aðrar gerðir. Veðrið var
athugað kl. 9, 15 og 21. Veðurathugun var skráð í mánaðarbók, sem send
var til Veðurstofunnar í pósti. Flestar veðurfarsstöðvar höfðu einungis
úrkomumæli og hitamælaskýli fyrir hitamæla. Á hverjum degi voru mæld
og metin: Lofthiti, daggarmark, lágmarkshiti, hámarkshiti, úrkomumagn,
úrkomutegund, skýjahula, skyggni, veðurlýsing, snjódýpt, snjóhula í
byggð og fjöllum, hagi, sjólag, vindhraði og vindátt. Nokkrar stöðvar
mældu lágmarkshita nætur við jörð eða sjávarhita.
Mannaðar úrkomustöðvar
Á stöðinni er úrkomumælir. Mæld er sólarhringsúrkoma á hverjum morgni
kl. 9. Athugunarmaður metur og skráir úrkomutegund undangenginn
sólarhring. Athugunarmaður mælir snjódýpt og leggur mat á snjóhulu í byggð
og í fjöllum. Mælingar eru sendar daglega um síma til Veðurstofunnar
og mánaðarskýrsla í pósti.
Sólskinsmælingastöðvar
Stöð sem skráir sólskinsstundir. Bjart sólskin skín á glerkúlu í
mælinum og brennir far á sólarblað dagsins. Athugunarmaður skiptir um
sólarblað í mælinum á hverju kvöldi. Sólarblöð eru send mánaðarlega
til Veðurstofunnar.
Úrkomusafnmælar
Flestir úrkomusafnmælar eru í óbyggðum og safna úrkomu yfir lengri tímabil.
Úrkomumagnið í þeim er mælt einu sinni í mánuði eða einu sinni á ári.
Árlega þarf að tæma mælana og skipta um pækil og uppgufunarvörn í þeim.
Sjálfvirkar veðurstöðvar
Sjálfvirkar veðurstöðvar skrá mælingar yfirleitt á 10 mín fresti. Í
sjálfvirkum stöðvum er skráningartölva og samskiptabúnaður við símkerfi
eða net. Tölvur á Veðurstofunni hringja yfirleitt á 1 klst fresti í
sjálfvirkar stöðvar og sækja mæligögn undangengins klukkutíma og færa
gögnin í miðlægan gagnagrunn. Flestar stöðvarnar mæla lofthita og
rakastig í 2 m hæð yfir jörðu og vindhraða og vindátt í 10 m hæð.
Margar hafa úrkomumæli og loftvog. Þá eru sumar með sólgeislunarmæli,
hitamæli við jörð, jarðvegshitamæla á 10, 20, 50 og 100 cm dýpi og
snjódýptarmæli.
Þórður Arason, 23. október 2019
|