Suðaustan 10-18 m/s og skýjað og fer að rigna sunnan- og vestanlands seinnipartinn, hvassast vestast. Mun hægari vindur og bjart norðaustantil, en skýjað í kvöld. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustanlands.
Suðlæg átt, 10-15 og rigning austantil á morgun, talsverð úrkoma á Suðausturlandi, en annars suðvestan 5-10 og skúrir.
Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Spá gerð 22.05.2025 10:22
Búast má við hvössum sunnavindstrengjum á Snæfellsnesi og við Esju í dag. Slíkt vindar geta verið varasamir ökutækjum, sem viðkvæm eru fyrir vindum.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 22.05.2025 10:22
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
3,6 | 21. maí 04:20:41 | 67,1 | 176,4 km N af Kolbeinsey |
2,9 | 21. maí 15:04:20 | Yfirfarinn | 28,3 km N af Borgarnesi |
2,6 | 21. maí 04:21:15 | Yfirfarinn | 15,7 km ASA af Grímsey |
2,5 | 20. maí 18:12:49 | Yfirfarinn | 7,6 km ASA af Bárðarbungu |
2,2 | 21. maí 04:21:41 | Yfirfarinn | 15,8 km ASA af Grímsey |
2,0 | 21. maí 13:50:46 | Yfirfarinn | 29,0 km N af Borgarnesi |
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Búast má við leysingum á landinu næstu daga vegna hlýinda. Nokkuð miklar dægursveiflur verða í ám um land allt, sér í lagi á Norðausturlandi og í kringum Vatnajökul.
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 20. maí 13:10
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | fim. 22. maí | fös. 23. maí | lau. 24. maí |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
![]() |
![]() |
![]() |
Norðanverðir Vestfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Tröllaskagi utanverður
|
![]() |
![]() |
![]() |
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
![]() |
![]() |
![]() |
Austfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Uppfært 20. maí
Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu. Ef hraði landrissins helst svipaður og hann hefur verið undanfarnar vikur, má ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat.
Apríl var óvenjulega hlýr á landinu öllu, sérstaklega fyrstu tíu dagar mánaðarins. Á landsvísu var þetta 5. hlýjasti aprílmánuður frá upphafi mælinga. Tíð var góð, það var hægviðrasamt og tiltölulega þurrt um stóran hluta landsins. Gróður tók vel við sér.
Lesa meiraUm 80 manns tóku þátt á fyrsta fundi í ICEWATERverkefninu, sem haldinn var dagana 24. og 25. mars 2025 í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Fundurinn markaði upphaf þessa metnaðarfulla verkefnis, sem miðar að því að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.
Lesa meiraUppfært 8. apríl kl. 15:10
Aflögunargögn sýna skýrt merki um að landris haldi áfram undir Svartsengi. Landris mælist nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Það gæti skýrst af því hversu mikið rúmmál kviku fór úr kerfinu í þessum síðasta atburði.
Hins vegar er enn of snemmt að segja til um áframhaldandi þróun á hraða kvikusöfnunarinnar. Reynsla frá fyrri atburðum sýnir þó að hraði kvikusöfnunar minnkar yfirleitt eftir því sem líður á kvikusöfnunartímabilið milli gosa. Bíða þarf í allavega viku, mögulega nokkrar vikur, til að segja til um hvort og þá hversu mikið hraði kvikusöfnunar mun breytast.
Lesa meiraÞann 1. apríl 2025 voru gerðar smávægilegar en gagnlegar breytingar á útvarpslestri veðurfrétta frá Veðurstofu Íslands á RÁS 1. Tímasetningar veðurfregna haldast óbreyttar, en innihaldið hefur verið tilsniðið til að veita hlustendum betri og markvissari þjónustu.
Lesa meiraMars var hlýr og hægviðrasamur um allt land. Úrkomulítið var norðaustanlands en úrkomusamara á vestanverðu landinu. Nokkuð sólríkt var bæði í Reykjavík og á Akureyri. Hvassviðri í upphafi og lok mánaðar ollu vandræðum. Veðrinu þ. 3. og 4. fylgdu sjávarflóð á suðvesturhorni landsins, en þ.30 varð mikið þrumuveður á sunnanverðu landinu.
Lesa meira