Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 3 til 13 stig, svalast norðvestanlands.
Norðan 8-13 vestantil á morgun, annars hægari. Lítilsháttar rigning eða slydda norðan heiða, skúrir á Suðausturlandi en að mestu þurrt suðvestanlands. Hiti 2 til 12 stig, mildast syðst.
Spá gerð 12.05.2024 10:45
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,0 | 12. maí 05:24:04 | Yfirfarinn | 11,3 km SV af Eldeyjarboða á Rneshr. |
1,7 | 10. maí 14:22:01 | Yfirfarinn | 1,7 km S af Skeggja á Hengli |
1,6 | 11. maí 22:49:08 | Yfirfarinn | 1,5 km SSV af Kröfluvirkjun |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Engin virkni er nú lengur í gígnum við Sundhnúk og eldgosi því talið lokið. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og gæti dregið til tíðinda með skömmum fyrirvara.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 10. maí 10:31
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Hægt er að nota Rauntímavöktunarkerfi í staðinn
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 01. maí 08:07
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | lau. 11. maí | sun. 12. maí | mán. 13. maí |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Árið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.
Lesa meiraLítil breyting hefur orðið á landrisinu eftir að eldgosinu lauk. Kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða og áður. Nú er magn kviku sem bæst hefur við komið upp fyrir efri mörkin, en reynslan frá Kröflueldum sýnir að eftir því sem kvikuhlaupum fjölgar þarf meiri þrýsting til að koma þeim af stað. Því verður að teljast líklegt að kvika hlaupi aftur úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, en nokkur óvissa er um hvenær nægilegum þrýstingi verður náð til að koma nýju kvikuhlaupi af stað og að kvika nái til yfirborðs.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Sérlega glæsileg silfurský sáust á Vesturlandi aðfaranótt sunnudagsins 7. ágúst 2011. Þau náðu upp í hvirfilpunkt himins. Einnig sáust silfurský næstu tvær nætur.
Lesa meira